Fréttir

Körfubolti | 29. ágúst 2005

Reshea Bristol á ný til Keflavíkur

Gengið var frá samningi við Reshea Bristol um að hún leiki með liðinu næsta vetur.  Reshea lék við góðan orðstír með liði Keflavíkur frá byrjun tímabils en þurfti frá að hverfa fyrir jól.  Keflavíkurliðið var ósigrað fyrir óvænt brothvarf hennar, en tapaði svo fjórum leikjum í röð.

Ekki nóg með að hún skoraði 21.5 stig að meðaltali í leik heldur lék hún mjög vel fyrir liðið.  Þ.e.a.s hún mataði samherja sína af góðum sendingum, stal mikið af boltum, spilaði fanta góða vörn og stjórnaði leik liðsins eins og herforingi.

Hér er vitnað í grein af heimasíðu okkar eftir síðasta leik hennar með Keflavík í fyrra.

''Það verður mikil eftirsjá að Resheu Bristol, svo mikið er víst. Stúlkan sú er afburða leikinn körfuboltamaður og sýndi allar sínar bestu hliðar í stórskemmtilegum leik gegn Haukum fyrr í kvöld. Reshea var ekki langt frá "fjórfaldri tvennu" því hún skoraði 26 stig, tók 10 fráköst, átti 13 stoðsendingar og stal boltanum 7 sinnum. Sendingar hennar voru í öllum regnbogans litum, "no-look" aftur fyrir höfuð og alls kyns taktar.''

Heimasíðan býður Reshea Bristol velkomna til Keflavíkur aftur.