Fréttir

Körfubolti | 11. janúar 2005

Reshea kvaddi Keflavík með stæl í stórsigri á Haukum, 100-76

Það verður mikil eftirsjá að Resheu Bristol, svo mikið er víst. Stúlkan sú er afburða leikinn körfuboltamaður og sýndi allar sínar bestu hliðar í stórskemmtilegum leik gegn Haukum fyrr í kvöld. Reshea var ekki langt frá "fjórfaldri tvennu" því hún skoraði 26 stig, tók 10 fráköst, átti 13 stoðsendingar og stal boltanum 7 sinnum. Sendingar hennar voru í öllum regnbogans litum, "no-look" aftur fyrir höfuð og alls kyns taktar. Reyndar má segja að allt liðið hafi leikið vel í kvöld, sérstaklega í seinni hálfleik þegar boltinn gekk vel á milli manna og vörnin var grimm. Eins var skotnýtingin góð, alls rötuðu 42 skot rétta leið af 76.

Reyndar var fyrri hálfleikurinn jafn og staðan 22-22 eftir fyrsta leikhluta. Meira af því sama í öðrum leikhluta, þó náði Kef sex stiga forystu fyrir hálfleik, 45-39. En pressuvörnin fór fyrst að virka almennilega í seinni hálfleik og Haukastúlkur, sem leikið höfðu afar vel, fóru að bugast undan pressunni. Okkar stúlkur gengu á lagið og röðuðu niður körfum úr hraðupphlaupum. Birna (24) og María Ben (19) voru iðnastar við stigaskorunina ásamt Resheu.

Munurinn jókst hratt og örugglega og í lokin var hann orðin 24 stig, 100-76. Það er ekki algengt að sjá svona stigatölur í kvennaleik og verður þessi leikur að teljast með þeim betri sem undirritaður hefur séð í langan tíma. Haukastúlkur eru öflugar og Helena Sverrisdóttir er illviðráðanleg, þrátt fyrir ungan aldur. Hún hefur mikinn leikskilning og gott skot, getur leikið allar stöður á vellinu.

Hér má sjá tölur úr leiknum.

Keflavík tryggði stöðu sína á toppi deildarinnar með þessum leik, en Haukar eru í góðri stöðu fyrir úrslitakeppnina, þrátt fyrir tapið.

Við kveðjum Resheu með söknuði, en vonum að liðið haldi áfram að styrkjast þrátt fyrir breytingar. Nú verður spennandi að sjá hver kemur í hennar stað, en það skýrist á næstu dögum.