Reshea með þrefalda tvennu í skrýtnum stórsigri á KR
Lokatölur leiksins voru 81-56 og hljómar það nokkuð sannfærandi 25 stiga sigur. En samt var leikurinn skrýtinn. Keflavík hafði algera yfirburði allan leikinn en einhvern veginn var stúlkunum alveg fyrirmunað að nýta ákjósanafleg færi mest allan tímann. Þær pressuðu grimmt og stálu boltum í gríð og erg og KR-stúlkur vissu ekki hvort þær væru að koma eða fara. Engu að síður var munurinn í hálfleik aðeins 5 stig, 38-33, og 3 stig eftir 3ja leikhluta, 57-54. En í síðasta leikhlutanum fóru hlutir loks að gerast og Keflavík vann hann 24-2! sem er fáheyrt.
Tölurnar úr þessum leik eru næstum því fáránlegar. Keflavík fékk 101 skot í leiknum en KR aðeins 52. Það merkilega er að okkar stúlkur hittu bara úr 30 af þessu 101 skoti sem segir sína sögu. Kannski að pressan og lætin í vörninni hafi haft þau áhrif að þær flýttu sér of mikið í sókninni. Keflavík stal 25 boltum en alls tapaði KR 41 bolta sem er afar mikið, enda sáu þær ekki til sólar gegn pressunni.
Ef skotnýtingin batnar þá er liðið að spila glimrandi bolta, svo einfalt er það.
Reshea skoraði 18, tók 12 fráköst og stal 10 boltum og var besti maður vallarins. Annars eru tölur úr leiknum hér.