Reykjanesbæjarslagur - Keflavíkurstúlkur mæta Njarðvík
Keflavíkurstúlkur mæta nágrönnum sínum úr Njarðvík í Domino´s deild kvenna í kvöld. Leikurinn fer fram á heimavelli Njarðvíkur og hefst kl. 19.15. Hið unga lið Keflavíkur hefur hafið leiktíðina gríðarlega vel og unnið fyrstu þrjá leikina. Hafa íslensku leikmenn liðsins vakið athygli fyrir góðan leik og má geta þess að hin 16 ára Sara Rún Hinkriksdóttir, sem farið hefur á kostum í upphafi leiktíðar, var á dögunum valin besti leikmaður fyrstu þriggja umferðanna af lesendum www.karfan.is.