Reykjanesmót kvenna: 19 stiga sigur gegn Haukum
Keflavíkurstúlkur sigruðu efnilegt lið Hauka um helgina með 19 stigum, 64-45. Leikurinn var í raun eign Keflavíkur frá upphafi og í hálfleik var munurinn orðinn 20 stig. Í seinni hálfleik var skiptst á körfum og munurinn hélst í horfinu.
Ungu stúlkurnar, María, Bára og Bryndís stóðu sig með sóma og Erla Reynisdóttir sýndi góða takta í seinni hálfleik. Birna Valgarðsdóttir lék ekki með þar sem hún var í útlöndum og Anna María Sveinsdóttir er enn ekki orðin leikfær vegna smá aðgerðar á hné.
Síðasti leikurinn fyrir úrslit í Reykjanesmótinu er á fimmtudaginn gegn Njarðvík að Ásvöllum í Hafnarfirði.