Reykjanesmót kvenna: 38 stiga sigur á Njarðvík
Keflavík hélt áfram sigurgöngu sinni á Reykjanesmóti kvenna í gærkvöldi þegar stúlkurnar unnu Njarðvík örugglega með 38 stigum, 75-37. Leikurinn var jafn framan af en eftir góða sprett tók Keflavík öll völd og vann örugglega. Bryndís stóð sig geysivel og er þar mikið efni á ferð. Erla Reynisdóttir meiddist í leiknum þegar hún fékk högg á lærið, en vonandi jafnar hún sig fljótlega.
Í hinni viðureigninni unnu Haukastúlkur Grindavík og mætast því Haukar og Keflavík í úrslitaleiknum á laugardaginn kl. 14 í Njarðvík. Það hlýtur að teljast til tíðinda að Haukar unnu bæði Njarðvík og Grindavík því Haukar eru jú í annarri deild, en hin tvö liðin í þeirri fyrstu.