Fréttir

Körfubolti | 10. september 2003

Reykjanesmót kvenna hefst á föstudaginn í Keflavík

Reykjanesmót meistaraflokks kvenna hefst föstudaginn 12. september í íþróttahúsi Keflavíkur að Sunnubraut. Leiknir verða tveir leikir sem hér segir:

  • kl. 18.00:  Njarðvík - Haukar
  • kl. 20.00:  Keflavík - Grindavík

Dagsetningar annarra leikja verða birtar síðar. Frítt verður á leikina og eru áhorfendur sérlega velkomnir, enda fróðlegt að sjá hvernig dömurnar okkar koma undan sumri, ekki síst þar sem þær eru nú undir handleiðslu nýs þjálfara.