Reykjanesmótið: Góður sigur á Grindavík
Eins og oft áður þegar Keflvíkingar mæta í Röstina í Grindavík var áhorfendum boðið upp á hraðan og skemmtilegan leik í kvöld. Pressuvarnir á báða bóga, 3ja stiga skot og mikill hraði. Keflavík komst í 3-7 en Grindavík svaraði með góðum spretti og komst í 12-7. Eftir að Keflavík jafnaði aftur leikinn komust okkar menn yfir og voru fetinu framar það sem eftir lifði leiks. Staðan í hálfleik var 48-42 og lokastaðan var 91-78.
Hvorugt liðið var fullmannað. Í Grindavíkurliðið vantaði Helga Jónas og "hinn" Kanann, en Darryl Lewis lék með. Hann lék ágætlega en þó ekki af sama krafti og s.l. vor. Okkar lið var Kanalaust, en þar að auki vantaði Sverri Þór sem er lítillega meiddur.
Gunnar Einarsson fór á kostum í leiknum báðum megin á vellinum. Hann skoraði grimmt og hafði einnig alls kostar við hávaxnari Grindjánum í vörninni. Greinilega kominn í fantaform, pilturinn. Halldór Halldórsson átti góða spretti og er í mikilli framför, og Jón Hafsteinsson var góður í vörninni og fráköstunum.
Bakvarðasveitin lék að mestu leyti vel þó aðeins hafi hún hikstað þegar Grindavík saxaði á forskotið í fjórða leikhluta. Munurinn hafði minnkað úr 10 stigum í fjögur vegna þess að okkar menn voru um tíma ekki nógu áræðnir gegn pressuvörn heimamanna. En þeir tóku sig á og brutu pressuna nokkrum sinnum í röð og þannig var sigurinn tryggður. Varnarleikurinn var annars ágætur, sérstaklega tókst vel til í svæðisvörn og pressunni.
Magnús var hittinn sem oft áður og sótti oft skemmtilega inn að körfunni. Hjörtur, Davíð, Arnar Freyr og Falur voru allir ógnandi. Gunnar Stefánsson nýtti færin sín vel.
Í heildina má segja að leikurinn hafi verið góður, þegar haft er í huga að Grindvíkingar eru yfirleitt ekki auðsigraðir í Röstinni. Næsti leikur er gegn Haukum á föstudaginn í Smáranum, en þar mætast tvö taplausu liðin í Reykjanesmótinu og má gera ráð fyrir hörkuleik, ekki síst þar sem Kanarnir verða líklega með.