Reykjanesrisarnir mætast á ný í kvöld í Sláturhúsinu við Sunnubraut
Nú er komið að úrslitastundu í einvígi Bikar- og Kjörísmeistara Keflavíkur og Íslandsmeistara Njarðvíkur í undanúrslitum Íslandsmótsins. Því í hverjum leik sem eftir er (hvort sem þeir verða einn, tveir eða þrír) geta úrslitin ráðist. Keflvíkingar hafa skiljanlega mikinn áhuga á að klára einvígið í kvöld, en Njarðvíkingar vilja örugglega ekki leika sinn síðasta leik í vetur strax.
Búast má því við hörkubaráttu og verulega reynir á “karakterinn” í Njarðvíkurliðinu eftir tvo ósigra í röð. Þeir hafa líklega verið í hálfgerðu sjokki eftir fyrsta leikinn, en eygðu síðan von á sigri í öðrum leiknum en réðu ekki við Keflavík á lokasprettinum. Þeir vita hins vegar að ef baráttan er til staðar er allt hægt.
Það vita líka okkar menn og því geta þeir ekki leyft sér að koma of afslappaðir til leiks líkt og þeir gerðu í Njarðvík á miðvikudaginn. Við þurfum harðari varnarleik og meiri baráttu um fráköstin ef vel á að vera. Skytturnar komast líka frekar í gang ef vörnin er grimm og leikurinn hraður því þá er erfitt að dekka menn út um allan völl. En Keflavíkurliðið virðist hafa gott vopnabúr um þessar mundir og getur leitað að körfum utan 3ja stiga línunnar jafnt sem inni í teignum og í því felst mikill styrkur.
Áhorfendur verða örugglega ekki sviknir af heimsókn í Sláturhúsið í kvöld því nú er allt lagt undir – þetta er eini sénsinn fyrir Keflavík að vinna 3-0 og þetta er eini sénsinn fyrir Njarðvík til að halda sér á lífi í körfunni í vetur.
Heimasíðan á því von á dúndurstemmingu og svaka leik – ÁFRAM KEFLAVÍK!