Reyndur þjálfari ráðinn til Keflavíkur
Unglingaráð Keflavíkur réð á dögunum til sín mjög menntaðan og reynslu mikinn þjálfara. Hann heitir Mihajlo Micic og er frá Serbíu ( Júgóslavía ). Mihajlo hefur mikla reynslu sem þjálfari, sérstaklega sem þjálfari stráka á aldrinum 15 til 18 ára. Það er einmitt sá aldur sem hann mun sjá um þjálfun á hjá Keflavík. Þekkasti leikmaður sem hann hefur þjálfað á sínum þjálfaraferli er Vlade Divac sem lék á árum áður með Lakers í NBA. Heimasíðan leit inná æfingu hjá honum um daginn og sá að þar er á ferðinn góður þjálfari og kemur með ferska vinda inní þjálfunamál hjá okkur í Keflavík.
Mihajlo á æfingu með unglingaflokk.