Fréttir

Körfubolti | 4. apríl 2003

Reynir Kristinsson, Hakum, veltir vöngm um Grindavíkur og Keflavíkur

Eftirfarandi grein er fengin "að láni" frá Sportid.is:
 
Við á Sportinu höfðum samband við þjálfara Hauka, Reynir Kristjánsson, og báðum hann um að spá og spekúlera í úrslitaviðureignir Grindavíkur og Keflavíkur og gefa okkur smá innsýn í það sem hann telur að eigi eftir að skipta sköpum um hverjir standa uppi sem sigurvegarar í lokin. Reynir hefur þjálfað Hauka síðustu misseri og í ár voru þeir eitt af þeim liðum sem komu hvað mest á óvart í deildinni. Þeir enduðu í 4. sæti með ungan leikmannahóp og lítt reyndan. Reynir er reyndur nagli og lék með Haukum, m.a. þegar þeir urðu Íslandsmeistarar. Hér fyrir neðan eru hugleiðingar Reynis.

Þegar maður sest niður og fer að velta fyrir sér möguleikum þessara tveggja liða á að landa Íslandsmeistaratitlinum í ár, þá hallast ég frekar að því að Keflavík vinni þessa rimmu.  Og ástæðan er nokkuð einföld, þeir eru með fleiri góða leikmenn en Grindavík.  Þó að Grindavík hafi sigrað Keflavík tvisvar í deildinni og tapað Kjörísbikarnum á flautukörfu frá Damon, þá finnst mér einhvern veginn þeir vera farnir að nýta Edmund Saunders betur í sínum leik og hann farinn að þekkja betur inn á sína meðspilara sem gerir þá sterkari.
Keflavík vann nágranna sína mjög sannfærandi í undanúrslitum á meðan Grindavík lagði Tindastól í oddaleik.  En Grindvíkingar hafa líka sýnt það að þeir bíta virkilega frá sér þegar mikið er undir, þeir vinna Hauka með 25 stigum til að landa deildarmeistaratitlinum og sama var upp á teningnum í oddaleiknum gegn Tindastól, þannig að þó að mér finnist Keflavíkurliðið vera sigurstranglegra þá finnst mér líklegt að þetta vinnist 3 - 1 eða 3 - 2.

Bæði þessi lið geta spilað frábæran sóknarleik og boðið upp á flugeldasýningar af bestu gerð, en eins og svo oft áður á þetta eftir að ráðast af því hvernig tekst til í varnarleiknum.  Takist Keflavík að halda Darrel Lewis niðri í þessum leikjum þá hjálpar það þeim mjög mikið því hann hefur verið að setja tæp 40 stig á Keflavík í leik hingað til.  Keflavík var í nokkrum vandræðum á tímabili með að klára leiki í jöfnum fjórða leikhluta en ég trúi ekki öðru en að þeir hafi náð að losa um þá stíflu sem þá var. Byrjunarlið Grindavíkur er örugglega jafnsterkt ef ekki sterkara en byrjunarlið Keflavíkur, en í þriggja til fimm leikja hörkuslag er erfitt að hafa ekki dýpt á bekknum.  Reyndar spiluðu Jóhann, Guðmundur Ásgeirs og Pramenko nokkuð vel í síðasta leik, en ég myndi nú frekar veðja á "varamenn" Keflavíkur, en Grindavíkur.

Ég vona bara að þetta verði skemmtilegir leikir og góð auglýsing fyrir körfuboltann í landinu og ef einhver lið geta boðið uppá hraðan og tilþrifamikinn bolta þá eru það þessi tvö.  Nú er bara að búa til góða umgjörð um leikina og gera gott "show" úr þessu.

Reynir Kr.