Risaslagur í Sláturhúsinu, Keflavík-Njarðvík
Það verður sannkallaður risaslagur í Sláturhúsinu á morgun, sunnudag þegar nágrannar okkar úr Njarðvík koma í heimsókn. Liðin hafa mæst einu sinni á tímabilinu, í Ljónagryfjunni þann 28. okt. og vann Keflavík sigur í þeim leik, 63-78.
Oft hefur verið skorað meira í viðureignum liðanna og ekki slæmt að halda Njarðvíkingum í 63. stigum á heimavelli. Tommy og B.A voru stigahæstir okkar manna í leiknum með 18. stig og Maggi var með 9. stig, Jonni og Arnar Freyr 8. stig. Sá leikur hjálpar okkur þó ekkert á sunnudaginn og alveg ljóst að Njarðvíkingar vilja reyna að kvitta fyrir það tap. Breytingar hafa orðið á liði gestanna frá leiknum því Charleston Long var skipt út fyrir Damon Bailey sem var einmitt var besti maður Njarðvíkinga í tapinu gegn ÍR í síðustu umferð.
Keflavík er sem fyrr á toppi deildarinnar með 26. stig en Njarðvík er í 4. sæti með 16. stig. að loknum 13. umferðum.
Leikir liðanna hafa og verða alltaf frábær skemmtun. Leikir sem allt er lagt undir og staða liðanna í deildinni skiptir engu máli. Áhorfendur hafa í gegnum árin skemmt sér vel á leikunum og td. var uppsellt á síðasta leik liðanna. Þess vegna er ástæða til að minna fólk á að mæta tímalega til að tryggja sér sæti.
Góða skemmtun og áfram Keflavík!!
Leikir liðanna frá 2000 í úrvalsdeild.
Fim. 12.okt.2000, Keflavík Keflavík - UMFN 106-96
Þri. 16.jan.2001, Njarðvík UMFN - Keflavík 74-63
Sun. 28.okt.2001, Njarðvík UMFN - Keflavík 65-89
Fös. 1.feb.2002, Keflavík Keflavík - UMFN 85-80
Fös. 11.okt.2002, Njarðvík UMFN - Keflavík 83-81
Þri. 7.jan.2003, Keflavík Keflavík - UMFN 77-80
Mán. 27.okt.2003, Njarðvík UMFN - Keflavík 93-86
Fös. 30.jan.2004, Keflavík Keflavík - UMFN 90-83
Þri. 14.des.2004, Njarðvík UMFN - Keflavík 73-78
Sun. 27.feb.2005, Keflavík Keflavík - UMFN 94-82
Fös. 30.des.2005, Njarðvík UMFN - Keflavík 108-84
Fim. 9.mar.2006, Keflavík Keflavík - UMFN 89-73
Fim. 21.des.2006, Njarðvík UMFN - Keflavík 86-72
Fös. 23.feb.2007, Keflavík Keflavík - UMFN 70-83
Sun. 28.okt.2007, Njarðvík UMFN - Keflavík 63-78