RN-MÓT kvenna: Keflavík Reykjanesmeistari 2003
Keflavík vann Hauka í úrslitaleik í Reykjanesmóti kvenna í Njarðvík í gær. Leikurinn var jafn allan tíman og ekki að sjá að Haukar væru í 2. deildinni og Keflavík þeirri fystu. Keflavíkurstúlkur áttu frekar dapran dag en náðu þó að sigla fram úr í lokin og sigruðu með fjórum stigum, 58-54. Engin lék sérlega vel að þessu sinni og ljóst að liðið hefur enn ekki slípast saman.
Með þessum sigri hafa Keflavíkurkonur unnið bæði æfingamót haustsins, fyrst Hraðmót ÍR og nú Reykjanesmótið. Næst á dagskrá er Meistarakeppni KKÍ, þann 5. október og síðan hefst deildarkeppnin.
Til hamingju stúlkur og Hjörtur.