Fréttir

Körfubolti | 24. september 2003

Rn.mót kvenna: Keflavík mætir Njarðvík í Hafnarfirði í kvöld kl. 20.00

Þriðju og síðustu umferð riðlakeppninnar á Reykjanesmóti kvenna lýkur á morgun, fimmtudag, að Ásvöllum í Hafnarfirði. Kl. 20.00 mætast Reykjanesliðin Keflavík og Njarðvík en á undan, kl. 18.30. mætast Grindavík og Haukar.

Keflavík hefur þegar tryggt sér sæti í úrslitunum sem fram fara í Njarðvík (vantar enn dagsetningu). Andstæðingar Keflavíkur í úrslitaleiknum verður sigurvegarinn úr leik Hauka og Grindavíkur.