Heimasíðan mun taka hlutunum rólega á næstu dögum og vikum enda sumarfrí framundan. Þó verður greint frá því helsta sem gerist, t.d. varðandi stjórnarkjör sem væntanlegt er á aðalfundi um miðjan maí. Um leið og gengið verður til samninga við þjálfara verður að sjálfsögðu sagt frá því hér á síðunni. Framundan er að “loka” síðustu leiktíð og síðan taka menn til óspilltra mála við að hugsa um það hvernig megi á næsta ári verja sem flesta af þeim titlum sem unnust í ár! Gleðilega páska.