Fréttir

Körfubolti | 7. apríl 2004

Röng "frétt" í Mogganum í morgun

Í Mogganum í morgun birtist eftirfarandi frétt:

"EITTHVERT framhald virðist ætla að verða á kærumálum í körfuknattleiknum því Keflvíkingar hafa kært Andrés Heiðarsson, leikmann Snæfells, fyrir að slá Jón Nordal Hafsteinsson í fyrsta leik liðanna."

Stjórn körfuknattleiksdeildar er frekar undrandi á þessari frétt þar sem hún er algerlega úr lausu lofti gripin. Engin kæra hefur verið sett fram á hendur Adrési og ekki hefur nokkurn tímann hvarflað að stjórn Keflavíkur að kæra Andrés. Stjórnin skilur ekki hvernig þessi frétt varð til. Haft hefur verið samband við Moggann og vonandi verður þessi misskilningur leiðréttur sem fyrst. Ekki hefur fengist skýring á tilurð "fréttarinnar".