Rose látin fara
Árangur Keflavík í 1 deild kvenna hefur undanfarin ár verið afar glæsilegur. Tímabilið í ár hefur að sama skapi verið stórglæsilegt, efstar í deild og hópbílameistarar. Síðustu 2 leikir hafa þó tapast. Fyrst í Grindavík 61-48 og svo í 4 liða úrslitum Bikarkeppni KKI og Lýsingar fyrir liði Hauka. Hvar liggur ástæðan að lið sem var búið að vinna alla sína leiki á tímabilinu tapar svona stórt í Hafnafirði. Það eru aldrei til neinar afsakanir fyrir því að tapa leik, þó ber að nefna að Rashea Bristol þurfti að fara frá félaginu að pérsónulegum ástæðum. Rashea var afar góður leikmaður og sennilega einn albesti leikmaður sem hér hefur spilað. Ekki nóg með að hún skoraði 21.5 stig að meðaltali í leik heldur lék hún mjög vel fyrir liðið. Þ.e.a.s hún mataði samherja sína af góðum sendingum, stal mikið af boltum, spilaði fanta góða vörn og stjórnaði leik liðsins. Lið sem er orðið vant því að hafa slíkan leikmann hlýtur að sakna hans. Latoya Rose var fengin í hennar stað og stóð hún engan vegin undir væntingu og því var ákveðið að láta hana fara. Leit að nýjum leikmanni stendur yfir.
Góðu fréttirnar er þó þær að Svava Ósk Stefánsdóttir verður orðin leikfær aftur eftir veikindi eftir um 10 daga. Það er mikil metnaður í liði Keflavíkur og það er pottþétt að þær muna gera allt til að verja stóra titilinn, sjálfan Íslandsbikarinn.
Mynd af stelpunum ásamt Sverrir þjálfara í æfingaferð í Danmörku.