Fréttir

Körfubolti | 30. nóvember 2003

Rowe með stórleik í sigri Toulon í frönsku deildinni – Fjórir kunningjar okkar í potúgalska All-Star leiknum

Jason Rowe, bakvörðurinn snaggaralegi, átti sannkallaðan stórleik þegar Hyeres Toulon bar sigurorð af Strasbourg í 10. umferð frönsku deildarinnar um helgina, 83-77. Hann gerði 27 stig, hirti 6 fráköst (hann er 1,73 á hæð), stal 6 boltum og gaf 7 stoðsendingar. Toulon heldur sér um miðbik deildarinnar, er í 10. sæti, en baráttan er hörð. Stóru strákarnir Milling og Gugino gerðu 16 stig hvor í leiknum og serbneska skyttan Asceric bætti við 11.


Jason Row á flugi

Fjórir góðkunningjar okkar voru valdir til að leika í All Star leiknum í Portúgal sem háður verður annað kvöld. Það eru þeir Nate Johnston og Chema Marcos frá Madeira (Marcos kom reyndar ekkert við sögu gegn Keflavík, sat meiddur á bekknum) og Spánverjarnir Morales og Silva frá Ovarense. Morales er stór “inside” spilari, en Silva mikil skytta. Morales gerði 21 stig gegn Keflavík og Silva 20. Silva varð í öðru sæti í 3ja stiga keppninni sem fram fór í dag.

Annars töpuðu bæði Ovarense og Madeira í síðustu umferðinni sem háð var á föstudaginn. Samt er Ovarense enn í efsta sætinu, en deilir því með tveimur öðrum liðum, með 7 sigra og 3 töp. Madeira hefur hins vegar tapað fjórum leikjum í röð eftir að meiðslin tóku að hrjá liðið og situr í 11. – 12. sæti með 3 sigra og 7 töp.

Næsti leikur í B-riðli Vesturdeildar Bikarkeppni Evrópu er á miðvikudaginn, þann 3. desember, en þá taka Frakkarnir í Toulon á móti Madeira í Espace3000 höllinni í Hyeres. Gera má ráð fyrir að þeir ætli sér ekki að tapa fleiri leikjum í þessum riðli og eru örugglega svekktir eftir tapið gegn Ovarense í síðustu umferð.

Viku seinna, þann 10. des. mætir síðan Toulon til Keflavíkur og á sama tíma tekur Madeira á móti Ovarense í portúgölskum slag.