Rúm vika í Evrópukeppni
Nú er rétt rúm vika í að Evrópukeppnin hefjist og reyndar er fyrsti leikurinn í okkar riðli núna á fimmtudaginn 20 okt, þegar Lappenrannan NMKY mætir BK Riga. Við spilum svo við NMKY miðvikudaginn 26 okt. kl. 18.30 á heimavelli þeirra í Lappeenranna. Tímamismunur á milli landanna eru þrír tímar svo leikurinn hefst kl 15.30 á okkar tíma. Ætlunin er að flytja ykkur fréttir beint á meðan leikur er og svo myndir og umfjöllun að leik loknum.
NMKY var stofnað 1950 og varð meistari í fyrsta skipti á síðasta tímabili. Liðið er skipað 2. leikmönnum frá USA, þeim Matthew_Williams og Andre_Foreman, Mockus kemur frá Lettlandi og Yasin MerZoug frá Svíþjóð. Liðið virðist ekki hafa mikla breydd, því þeir Foreman, Willams, Jussi, Yasin, Pasi og Midaugas Mockus spila flestar mínútur liðsins og flestir í kringum 30 min. í leik. Jussi er stigahæstur hjá þeim í deildinni með sirka 20 stig í leik ásamt því að taka 6 fráköst. Willams er með 17 stig og 8 fráköst, Foreman er með 15 stig, Mockus 10 stig og Pasi 10 stig. Liðið er sem stendur í 4. sæti deildarinnar.
Nr | Nafn |
Fæðingadagur |
Staða |
Hæð |
Þyngd |
4 | Matthew Williams | 01.02.1977 |
2/3 |
201 |
98 |
5 | Lasse Hintsala | 19.10.1984 |
2/3 |
193 |
80 |
6 | Jussi Kumpulainen | 09.04.1976 |
4/5 |
204 |
106 |
8 | Jari Hagman | 25.08.1975 |
4 |
198 |
103 |
9 | Pasi Riihelä | 06.04.1975 |
3 |
199 |
99 |
10 | Yasin Merzoug | 15.01.1979 |
1 |
183 |
85 |
11 | Jarno Laukkanen | 23.01.1976 |
1/2 |
189 |
90 |
12 | Otto Suninen | 20.04.1985 |
2 |
185 |
90 |
13 | Mindaugas Mockus | 11.05.1980 |
3 |
195 |
94 |
14 | Kimmo Tolvanen | 17.06.1977 |
3 |
193 |
86 |
15 | Andre Foreman | 23.05.1969 |
3/4/5 |
198 |
100 |
Mika Turunen |
Þjálfari |