Fréttir

Karfa: Karlar | 6. apríl 2011

Rútuferð fyrir stuðningsmenn á morgun!

Á morgun er stóri dagurinn! Oddaleikur Keflavíkur og KR í 4-liða úrslitum Iceland Express deild karla.

Miðasalan opnar kl. 12 á hádegi á morgun í DHL höllinni og verður opin fram að leik. Ekki þarf að örvænta með að Keflvíkingar fái ekki sæti, því við verðum með okkar horn eins og venjulega og fyllum svæðið. Húsið opnar kl. 18 og eru allir hvattir til að mæta tímanlega, því það verður án efa stappað í höllinni.

Rútuferð verður farin fyrir stuðningsmenn frá Toyota Höllinni kl. 16:30. Það kostar 1.000 kr. á manninn í rútuna. Fyrstir koma, fyrstir fá. Rútan tekur 60 manns í sæti.

Nú mætum við öll sameinuð og komum strákunum áfram í úrslitin!

ALLIR AÐ MÆTA Í HVÍTU

Áfram Keflavík!