Fréttir

Rútuferð í Garðabæ - Lagt af stað kl. 17.30
Karfa: Karlar | 27. mars 2013

Rútuferð í Garðabæ - Lagt af stað kl. 17.30

 

Keflvíkingar eru byrjaðir að smala í rútuferð til Garðabæjar á morgun en hún verður farin stundvíslega  kl. 17.30 frá íþróttahúsinu í Keflavík - Toyota höllinni. Kostnaðinum verður haldið í algjöru lágmarki og mun ferðin kosta 1000 kr. á mann en sæti eru fyrir 50 í rútunni. Pumasveitin jr. mun hópast í rútuna og verður því stuð og stemmning hjá þeim ungu og vösku sveinum. Mætið stundvíslega - fyrstir koma fyrstir fá!
 
Áfengi er stranglega bannað í rútunni. Verði vart við áfengi verður sá hinn sami bannaður aðgangur á leiki Keflavíkur í framtíðinni.