Rútuferðir á morgun frá sunnubraut
Þá er komið að því!
Bikarleikurinn að nálgast og Keflvíkingar vonandi fullir af spennu og eftirvæntingu.
Hópferðir Sævars verða með rútuferðir á morgun fyrir stuðningsmenn.
Trommusveitin leggur af stað kl. 12:00 frá sunnubraut og verður kaldur drykkur í boði. Þeir munu taka stefnuna á Ölver, þar sem upphitun mun eiga sér stað. Veitingar á tilboði fyrir Keflvíkinga.
Seinni rútan fer kl. 14:30 frá sunnubraut.
Koma svo Keflvíkingar! Styðjum okkar menn í leiknum á morgun!!
Áfram Keflavík!