Töluverður áhugi virðist vera meðal stuðningsmanna Keflavíkur að fara á Sauðárkrók á laugardaginn og hvetja þar okkar menn til dáða. Stjórnin vill athuga hvort grundvöllur er fyrir sætaferðum og verður settur upp listi á heimaleiknum á morgun þar sem áhugasamir geta skráð sig. Verð í sætaferðirnar verður 2.000 kr. Listinn verður í sjoppunni og þar geta menn skráð sig. Ef næg þátttaka fæst verður lagt af stað kl. 10 um morguninn.