Sætaferðir á mánudag kl. 15.30
Fjölmargir Keflvíkingar óku í Hólminn á fimmtudaginn til að fylgjast með fyrstu viðureign Snæfells og Keflavíkur í Baráttunni um Ísland. Margir hafa lýst yfir áhuga á sætaferðum og hefur stjórnin ákveðið að bregðast við þessum óskum. Því verður farið með rútu til Stykkishólms á mánudaginn kl. 15.30. Mikilvægt er að áhugasamir skrái sig í ferðina til að unnt verði að panta rútu af réttri stærð. Listar verða settir upp á heimaleiknum í dag. Verð í ferðina er 1.800 kr. sem verður að teljast nokkuð sanngjarnt, því hafa verður í huga að ef menn aka á einkabílum þá fellur til mikill kostnaður, t.d. bensín, göngin og e.t.v. hraðasektir . . . :)