Sætaferðir í Hólminn?
Fyrirtæki/Stofnanir í Reykjanesbæ
Barna- og Unglingaráð Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur stóð fyrir sætaferðum á leiki Keflavíkur og ÍR. Ferðir þessar sem voru kostaðar af Sparisjóðnum í Keflavík tókust með ágætum. Sparisjóðnum eru færðar þakkir fyrir stuðninginn.
Barna- og Unglingaráð Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur er að undirbúa sætaferðir til Stykkishólms mánudaginn 4. apríl. Farið verður frá íþróttahúsinu við Sunnubraut kl. 15:30.
SBK og Samkaup hafa þegar styrkt framtakið, en enn vantar styrktaraðila til að hægt sé að bjóða upp á fríar ferðir. Styrktaraðilar sem áhuga hafa á málefninu eru beðnir um að gefa sig fram sem fyrst, en ef þarf er einnig í undirbúningi að hafa fríar sætaferðir á 4. leikinn í Stykkishólmi sem hugsanlega verður laugardaginn 9. apríl. Fyrirtæki og stofnanir sem áhuga hafa á að styrkja málefnið hafi samband í síma:
863-0250, Ásdís
892-4496, Jón
Ef ekki næst að fjölga styrktaraðilum, munu stuðningsmenn eldri en 20 ára væntanlega þurfa að greiða kr. 1.000 fyrir sætið.