Vegna áskorana hefur verið ákveðið að leggja af stað kl. 15.00 í rútuferðina til Stykkishólms á morgun. Farið verður frá íþróttahúsinu við Sunnubraut. Enn eru nokkur sæti laus, þannig að þótt fólk hafi ekki skráð sig þá getur það mætt í íþróttahúsið rétt fyrir kl. 15 og athugað málið. Verð er kr. 1.800 og 1.000 fyrir börn.