Fréttir

Karfa: Hitt og Þetta | 17. apríl 2007

Sálin hans Jóns Míns á lokahóf KKÍ í Stapa 28 apríl

Ákveðið hefur verið að halda lokahóf Körfuknattleikssambands Íslands laugardaginn 28. apríl 2007.

Lokahófið verður haldið í Félagsheimilinu Stapa í Reykjanesbæ að þessu sinni. Hófið verður með breyttu sniði að einhverju leyti og er markmið okkar að þetta lokahóf verði fjölmennt, skemmtilegt og eftirminnilegt.

Sálin Hans Jóns Míns á lokahófi KKÍ 2007
 


Þegar almennri dagskrá lýkur mun vinsælasta hljómsveit landsins Sálin Hans Jóns Míns stíga fram og skemmta okkur fram á nótt.

Björgvin Franz Gíslason verður veislustjóri á Lokahófi KKÍ sem fram fer aðra helgi.

Björgvin hefur þegar fundað með KKÍ mönnum og hann lofar góðri skemmtun. Fyrir þá sem ekki þekkja Björgvin þá er hann sonur Eddu Björgvinsdóttur og Gísla Rúnars Jónssonar.

Búist er við miklum fjölda á hófið og því skynsamlegt að bíða ekki með það fram á síðustu daga að panta og ganga frá miðum.

Tekið er við miðapöntunum á kki@kki.is einnig á karfan@keflavik.is