Fréttir

Körfubolti | 21. nóvember 2004

Samantekt um næstu leiki hjá Keflavík

Það er búið að vera mikið að gera hjá Keflavík síðustu vikur eins og allir vita og  þannig verður það áfram.  Strákarnir fara í fyrramálið út og spila við Reims í Frakklandi í Bikarkeppni Evrópu. Leikurinn er kl 19.30 á Íslenskum tíma og verðu fylgst með honum hér á síðunni.  Þeir leika svo í Intersportdeild á fimmtudag við Hamar/Selfoss í Hveragerði kl 19.15. Svo er komið að Bikarkeppni Lýsingar, þar mætum við Snæfell kl 19.15 á sunnudag.  Strákarnir í 1 flokk eða Keflavík B mætir Stjörnunni sama dag kl 16.30 einnig í Keflavík. Næst er svo Intersportdeild fimmtudagur kl 19.15. Keflavík - Skallagrímur. Þá er komið að Danmörk þriðjudaginn 7 des, leikur við Bakken Bears og svo CAB Madeira 9 des. Þá er komið að Intersportdeild, Njarðvík - Keflavík í Njarðvík þriðjudaginn 14 des. Svo aftur sama deild Keflavík - Fjölnir fimmtudag 16 des. Þetta er planið hjá mfl fram að jólum, alls 8 leikir.

Stelpurnar hafa líka í nægu að snúast. Næsti leiku er á móti Haukum á Ásvöllum á fimmtudag kl 18.00. Svo er komið að úrslitaleik í Hópbílabikar kvenna á móti Ís á Laugardag kl 16.00 í DHL höllinni. 8 des spila þær við Grindavík í Keflavík kl 19.15 . Sunnudaginn 12 des er komið að Bikarkeppninni, þar leika saman Keflavík og Keflavík b í Keflavík að sjálfsögðu. Siðasti leikur fyrir jólafrí svo á móti KR í DHL höll laugardag 18, kl 16.00.