Fréttir

Körfubolti | 25. maí 2005

Samið við Arnar Freyr

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hefur lagt á það mikla áherlsu að semja áfram við núverandi leikmenn liðsins. Bakvörðurinn og leikstjórnandinn Arnar Freyr Jónsson skrifaði undir áframhaldandi samning í gær. Arnar Freyr er í landsliðshópnum sem fer á smáþóðaleikana í lok mánaðarins. Það þarf varla að taka það fram að Arnar er uppalinn í Keflavík og er 22 árs. Arnar lék 29 leiki í deildinni vetur og 4 evrópuleiki.

 

Hér_má_sjá_tölfræði_Arnars_í_Interspordeild.