Fréttir

Körfubolti | 11. maí 2005

Samið við Sigurð, Sverri Þór og Gunnar E.

Fyrr í vor voru framlengdir leikmannasamningar við Magnús Gunnarsson og Jón N Hafsteinsson, eins og menn kannski muna. Í framhaldi af leiktíðarlokum hélt stjórnin áfram að reyna að tryggja áframhaldandi veru þjálfara og leikmanna úr liði Íslandsmeistaranna.

Í kvöld var gengið frá þremur mikilvægum samningum:

  • Sigurður Ingimundarsson verður þjálfari mfl. karla næstu tvö árin.
  • Sverrir Þór Sverrisson verður þjálfari mfl. kvenna næstu tvö árin og mun að öllum líkindum einnig leika með mfl. karla. Sverrir hefur á undanförnum árum ekki viljað ákveða hvort hann leiki áfram fyrr en nær líður hausti og svo er enn nú. Hins vegar hefur hann samþykkt, að svo fremi hann leiki áfram, muni hann leika með Keflavík.
  • Gunnar Einarsson, fyrirliði, mun leika áfram með Keflavík næstu tvö árin.

Stjórnin er vitanlega ánægð með að halda þessum ágætu mönnum innanborðs og mun áfram vinna í því að reyna að tryggja að allir Íslandsmeistarar karla og kvenna verði áfram í félaginu.