Fréttir

Körfubolti | 1. febrúar 2005

Samkaupsmót 2005 haldið 5 og 6 mars.

Samkaupsmótið 2005 verður haldið 5 og 6 mars næstkomandi. Mótið er árlegur viðburður og er eitt stærsta og flottasta körfuboltamót á Íslandi og margir krakkarnir sem býða spennt eftir því á hverju ári.  Mótið er haldið í samvinnu unglingadeilda Keflavíkur og Njarðvíkur í sameiningu við Samkaup. Hátíðin er fyrir drengi og stúlkur í minnibolta fædd 1993 og síðar. Leikið verður á 8 völlum, 2 x 12 mínútur hver leikur.

Innifalið í mótsgjaldi, er bíóferð, gisting, morgunmatur, 3 máltíðir, sundferð, kvöldhressing, kvöldvaka, pizzuveisla, verlaunapeningur og margt fleira.

Mótsgjald:   Félagsgjald 10.000.-  krónur 3.500.- hver einstaklingur. Frítt er fyrir 1 þjálfara og aðstoðamann á hvert lið.

Skráning og nánari upplýsingar:   Falur J. Harðarsson. falur4@simnet.is   4214468 og 8964468.

Ath. lokað verður fyrir skráningu  25 febrúar 2005.