Fréttir

Körfubolti | 4. mars 2005

Samkaupsmótið um helgina

Samkaupsmótið verður haldið um helgina í Reykjanesbæ. Unglingaráð Keflavíkur og Njarðvíkur standa sameigilega að mótinu og verður mótið það fjölmenasta til þessa. Von er á um 800 krökkum og 122 liðum ásamt foreldrum, þjálfurum og liðstjórum. Spilaðir verða 295 leikir í Heiðaskóla, Sunnbraut og Njarðvík alls 10 vellir. Heimasíða með upplýsingum, myndum, korti af bænum og fl. hefur verið sett upp og er slóðin hér:  http://www.samkaupsmot.mis.is/

Keflavík 23 er eitt liða af 122 sem tekur þátt í Samkaupsmótinu.