Fréttir

Körfubolti | 3. febrúar 2004

Sex keflvísk lið í undanúrslitum í bikarkeppni yngri flokka

Í dag var dregið í undanúrslit í bikarkeppni yngri flokkanna. Dregið var í öllum átta flokkunum sem taka þátt í bikarkeppninni. Gert er réð fyrir að leikirnir fari fram 9.-13. febrúar. Keflavík á lið í sex flokkanna, reyndar á Keflavík enn eftir að leika gegn KR í 8 liða úrslitum í unglingaflokki kvenna, en þann leik þarf að endurtaka.

Eftirtalin félög drógust saman:

Unglingaflokkur karla:
UMFG - Haukar, UMFN - Fjölnir

Drengjaflokkur:
Þór Ak. - UMFN, Keflavík - KR

11. flokkur karla:
Keflavík - ÍA, Fjölnir - KR

10. flokkur karla:
Valur - Keflavík, Fjölnir - UMFN

9. flokkur karla:
Þór Þ. - UMFN, Snæfell - Keflavík

Unglingaflokkur kvenna:
UMFG - UMFN, KR/Keflavík - Haukar

10. flokkur kvenna:
Keflavík - Kormákur, UMFN - Fjölnir

9. flokkur kvenna:
Kormákur - UMFG b, ÍR - UMFG