Sex keflvískar dömur í Stelpuslag 2004 sem fram fer í kvöld í Seljaskóla
ÍR-ingar eiga heiður skilið fyrir að hafa haft frumkvæði að All-Star leik kvenna sem nú verður leikinn í fyrsta skiptið. Leikurinn verður háður í Seljaskóla í Breiðholti í kvöld og hefst kl. 20.00. Netverjar völdu 10 af 12 leikmönnum í liðin, en þjálfararnir bættu við tveimur leikmönnum.
Liðin eru þannig skipuð, atkvæðamagn hvers leikmanns er í sviga:
Reykjavík:
Byrjunarlið:
Alda Leif Jónsdóttir ÍS, bakvörður (505)
Eplunus Brooks ÍR, miðherji (490)
Hildur Sigurðardóttir KR, bakvörður (440)
Lovísa Guðmundsdóttir ÍS, framherji (340)
Katie Wolfe KR, framherji (316)
Aðrir kosnir leikmenn:
Kristrún Sigurjónsdóttir ÍR, framherji (189)
Stella Rún Kristjánsdóttir ÍS, bakvörður (163)
Guðríður Svana Bjarnadóttir ÍS, miðherji (159)
Rakel Margrét Viggósdóttir ÍR, framherji (121)
Svandís A Sigurðardóttir ÍS, framherji (118)
Leikmenn valdir af þjálfara:
Jófríður Halldórsdóttir ÍS, framherji (61)
Hafdís Helgadóttir ÍS, framherji (60)
Suðrið:
Byrjunarlið:
Erla Þorsteinsdóttir Keflavík, miðherji (491)
Helena Sverrisdóttir Haukar, framherji (356)
Erla Reynisdóttir Keflavík, bakvörður (320)
Pálína M Gunnlaugsdóttir Haukar, bakvörður (311)
Birna Valgarðsdóttir Keflavík, framherji (222)
Aðrir kosnir leikmenn:
Auður R Jónsdóttir Njarðvík, bakvörður (261)
Sólveig Gunnlaugsdóttir Grindavík, framherji (193)
Marín R Karlsdóttir Keflavík, bakvörður (186)
Anna María Sveinsdóttir Keflavík, framherji (156)
Petrúnella Skúladóttir Grindavík, framherji (137)
Leikmenn valdir af þjálfara:
María B Erlingsdóttir Keflavík, miðherji (126)
Kesha Tardy Grindavík, miðherji (81)
Margt verður til gamans gert á Stelpuslag og má þar nefna 3ja stiga keppni og Vítakeppni (Stinger) þar sem skotið er þar til einn leikmaður stendur eftir á vítalínunni. Fyrir hönd Keflavíkur taka Svava og Birna þátt í 3ja stiga keppninni og Anna María og Erla Reynisdóttir.
Við hvetjum alla til að bregða sér í Seljaskólan og verða vitni að sögulegum viðburði!