Sigrinum fagnað - myndir úr ýmsum áttum
Keli Keflvíkingur stóð í ströngu allan daginn og hélt uppi góðu stuði
Eins sýndi han afar góða danstakta með fimleikastelpunum
Sætaferðirnar voru vel nýttar, hér er fyrsti hópurinn á leið í Höllina
kl. 11.30 um morguninn
Fjölmargir stuðningsmenn af yngstu kynslóðinni nýttu sér sætaferðirnar
og fylltu a.m.k. eina rútu
Árni var heiðursgestur og studdi liðin af miklum krafti. Við hlið hans er Ellert,
en hann hefur verið einn dyggasti stuðningsmaður okkar um áraraðir.
Þar við hliðina er formaður Keflavíkur, Einar Haraldsson.
Fjölmargir starfsmenn voru á vegum Keflavíkur á leikjunum.
Hér má sjá þrjá góða.
Um leið og sigrinum var fagnað voru húfurnar klárar, en á þeim stendur
Bikarmeistarar 2003!
Gólfið fylltist af stuðningsmönnum sem umkringdu leikmenn
og samglöddust þeim
Eins og oft áður vildu margir fá eiginhandaráritun hjá Damon
Stóra stundin rann upp og Magnús og fleiri fengu að lyfta "Bikarnum"
i fyrsta sinn á ferlinum
Gunni Stef og Jonni tóku líka kröftuglega á Bikarnum
Ed Saunders með sinn fyrsta verðlaunagrip á Íslandi
Damon varð Bikarmeistari í annað sinn á ferlinum
Seinna um kvöldið fengu líka þeir að halda á Bikarnum sem
höfðu ekki verið í liðinu um daginn. Sævar var á hækjum og
gat því miður ekki spilað. En hann tekur sig vel út með Bikarinn.
Þessir heiðursmenn eiga líka sinn hlut í Bikarnum, þótt þeir séu
þekktir fyrir að vera einu tveir mennirnir í Keflavík sem æfðu handbolta!
Þjálfarinn greip í gítarinn og flutti frumsamin lög við mikinn fögnuð viðstaddra
Honum til aðstoðar var söngsveitin "Einar Skafta og jaxlarnir"