Fréttir

Körfubolti | 28. mars 2004

Sigur - ekkert annað dugir

Nú er að duga eða drepast fyrir okkur Keflvíkinga, sigur í dag kemur okkur í oddaleik á Þriðjudagskvöld í Grindavík, tap þýðir langt og ótímabært sumarfrí. Keflavíkurliðið hefur sýnt það í þessum leikjum sem búnir eru að þeir hafa alla burði til að klára dæmið ef menn eru klárir í slaginn, einhver skjálfti virðist hafa komið upp í 4.leikhluta í síðustu leikjum það er vonandi komið í lag.

Leikurinn í dag snýst um áframhald eða sumarfrí. Heimavöllurinn er okkur sterkur og þar kannast drengirnir við hverja fjöl, nú er bara að taka vel á móti Grindvíkingum. Leikurinn hefst kl:17:00 leikir liðanna hafa verið bráðfjörugir, ekki missa af þessum.

 

ÁFRAM KEFLAVÍK