Sigur á Haukastúlkum
Keflavíkurstúlkur skelltu sér í Hafnarfjörðinn í kvöld og áttu þar leik við Haukastúlkur. Lokatölur leiksins voru 53-74 fyrir Keflavík.
Leikurinn byrjaði á fjörugu nótunum, þar sem bæði lið skiptust á forystu í leiknum. Stelpurnar í Keflavík spýttu þó í lófann og sigldu hressilega fram úr Haukaliðinu þegar farið var að síga á 2. leikhluta. Staðan í hálfleik var 28-45 Keflavík í vil. Þessari þægilegu forystu héldu þær í seinni hálfleik og lönduðu góðum sigri eins og fyrr segir, 53-74.
Hjá Keflavík var Pálína Gunnlaugsdóttir atkvæðamest með 16 stig. Jacqueline Adamshick skoraði 15 stig og hirti 12 fráköst. Bryndís Guðmundsdóttir var með 15 stig og Birna Valgarðsdóttir skoraði 14 stig.
Keflavíkurstúlkur sitja í öðru sæti A-riðils með 26 stig, en Hamar trónir á toppnum með 32 stig eftir jafnmarga leiki.