Fréttir

Körfubolti | 30. október 2005

Sigur á KR í kvöld

Keflavík sigraði KR í kvöld 74-71, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 37-29. Keflavík byrjaði leikinn að fullum krafti og ekki að sjá á strákunum að þeir væru að koma heim úr erfiðu ferðalagi. Reyndar var þetta 4 leikurinn á 8 dögum og sá 3 á 5 dögum og í þremur löndum!! Sem dæmi fóru strákarnir í 7 flugferðir á þessum tíma.

AJ sem átti góða leiki í Evrópukeppninni byrja leikinn af sama krafti og áður. Staðan eftir nokkrar mín. var 8-2 fyrir Keflavík og AJ kominn með öll stiginn. Hann er mjög sterkur undir körfunni þó hann sé ekki mjög hávaxinn. KR átti góða ristu fram að lokum fyrsta leikhluta og staðan eftir hann var 14-18 fyrir KR. Keflavík tapaði boltanum í alls 7 sóknum í röð á þessu kafla og lauk sóknunum allt of fljót.

Keflavík herti heldur betur tökin strax í byrjun 2. leikhluta og AJ sá um að klára margar sóknirnar. Þeir breytu stöðunni fljót í 23-18 með 9 stigum í röð og besta kafla sínum í leiknum. Vörnin var að virka mjög vel á þessum kafla.  Zlatko stóð sig ágætlega í fráköstum og var alls með 9 í leiknum öllum, 5 varin skot. Eins og áður sagði staðan í hléi 37-29.

Þriðja leikhluta áttu KRingar og náðu að jafna leikinn 50-50. Ashley Champion var að spila vel á þessum kafla og skoraði alls 5 þrista í leiknum úr 7 tilraunum.  KRingar náðu líka að nýta skotklukkuna vel og skoruðu nokkrar körfur þegar tíminn var að renna út.

Keflavík náði forustuni í leiknum strax í byrjun 4. leikhluta og Magnús Þór setti niður nokkrar mikilvægar körfur. Baráttan var líka til staðar og Sverrir spilað góða vörn. KRingar brutu á Magga þegar nokkrar sek. voru eftir og til að freista þess að jafna leikinn . Maggi sem er frábær vítaskytta brenndi af báðum skotunum og KR-ingar fengu boltan. Tímin var þó naumur og Zlatko náði að blokka innkastið og tímin rann út.

Það var því góður sigur í höfn og mikilvægur, því liðið hefur oft átt slæma leiki þegar komið er heim úr  leikjum í Evrópukeppninni. AJ og Maggi voru bestu menn liðsins í kvöld eins og í síðustu leikjum. Samanlagt skoruðu þeir 55 stig að 74 stigum liðsins.  AJ átti mjög góðan leik skoraði 33 stig, tók 7 fráköst og hitti úr öllum 4 vítunum sínum.  Maggi skoraði 22 stig, 5 þriggja ( 50 % ) og tók 6 fráköst. Zlatko bæti sig í fráköstum, tók 9 og varði 5 bolta. Hann spilaði ágæta vörn en skoraði aðeins 2 stig.

Í heild góður sigur en margt sem þarf að laga fyrir Evrópuleikinn á fimmtudaginn. Td. töpuðum við 20 boltum sem er allt of mikið.

Hér er tölfræði leiksins.