Fréttir

Karfa: Karlar | 13. desember 2007

Sigur á Skallgrím og fullt hús eftir 10. umferðir

Keflavík sigraði í kvöld Skallagrím í 10. umferð Iceland Express deild karla, 92-80. Leikurinn var síðasti leikur fyrir jólafrí sem er þó stutt rétt eins og í fyrra því leikin er heil umferð 28. des. Við mætum þá Fjölni úr Grafarvogi í Íþróttamiðstöðinni kl. 19.15.

Leikurinn fór rólega af stað enda komin tæpur mánuður frá síðasta heimaleik liðsins. Byrjunarlið Keflavíkur var sígilt þeir Jonni, B.A, Tommy, Maggi og Susnjara byrjuðu inná. Jonni skoraði fyrstu stig Keflavíkur en næstu fjögur stig komu frá Tommy sem tók af skarið í sóknarleik liðsins í byrjun leiks. Susjnara fékk sína aðra villu þegar um 6. mín. voru liðnar af leiknum. Þá er gott að eiga Sigga á bekknum sem kom sprækur inná. Skallagrímsmenn komustu yfir 6-11 en þá kom góður kafla Keflavíkurliðsins. Staðan eftir fyrsta leikhluta 20-24.

Í öðrum leikhluta brugðu heimamenn á það ráð að spila spressuvörn og þvílík varnarsýning fór í gang. Meira að segja Óskar Ófeigur hefði verið sveittur að skrá alla töpuðu boltana hjá Sköllunum, en því miður fyrir Keflavík þá var sóknarleikur liðsins ansi dapur. Reyndar voru Skallagrímsmenn að leika ágætis vörn en sókn liðsins var skelfileg og eins voru þeir að velja vonlaus skot í sókninni. Staðan í hálfleik var 48-39 fyrir Keflavík.

Keflvíkingar byrjuðu seinni hálfleikinn ágætlega og voru komnir með þægilegt forskot þegar þriðji leikhluti var hálfnaður. Það hægðist vel á leiknum þegar staðan var 60-45 og þegar leikhlutinn var allur hafði Keflavík 10 stiga forskot.

Fjórði leikhlutinn fer ekki í sögubækurnar fyrir gæði og í raun var hann svitalaus fyrir heimamenn á meðan gestirnir gáfust heldur fljótt upp. Því fór það þannig að Keflvíkingar sigldu öruggum tveim stigum í hús og urðu lokatölur 92-80.

Hafþór Ægir Gunnarsson átti enga skýringu á slökum leik Skallanna. „Í raun var þetta mjög dapurt hjá okkur. Við vorum ekki að spila neina vörn að ráði og þeir gátu skotið að vild. En það er bara næsti leikur gegn KR sem er næst á dagskrá og hann ætlum við að vinna," sagði Hafþór.

Sigurður Ingimundarson var heldur hressari og hann var á því að þetta hefði verið frekar rólegur dagur. „Þetta var svona í rólegri kantinum. Borganes var í raun að spila ágætlega en við vorum frekar daprir. Þeir urðu fljótt þreyttir enda spila þeir á fáum mönnum," sagði Sigurður en hans menn hafa unnið alla tíu leiki sína. -  höþ visir.is

Keflavík er á toppnum með 20 stig, KR er í öðru með 16 og Grindavík er í þriðja sætinu með 14 stig en á leik til góða gegn Þór annað kvöld. Njarðvík er svo í fjórða sætinu með 12 stig, Skallagrímur með 10 í fimmta og ÍR, Þór og Snæfell hafa 8 stig en Þórsarar eiga leik til góða.

 

Tölfræði leiksins eftir smá.

Þessa flottu mynd tók Jón Björn fyrir vf.is í kvöld.