Fréttir

Körfubolti | 30. mars 2004

Sigur eða sumarfrí!!

Þá er komið að oddaleik í þessari frábæru seríu milli Grindavíkur og Keflavíkur. Liðin unnu sinn leikinn hvort í upphafi og síðan kom hnífjafn leikur sem Grindavík vann í framlengingu. En Keflvísku strákarnir jöfnuðu með sannkallaðri flugeldasýningu, eins og menn muna. En stórsigur er bara einn sigur og staðan er því 2-2 og í þriðja sinn er einvígið komið á byrjunarreit, ef svo má segja. Grindavík hefur heimavöllinn en Keflavík hefur sjálfstraustið - spurning hvort vegur þyngra?

Grindvíkingar eru eins og særð ljón núna, en særð ljón eru einmitt hættulegust. Það er að vísu hægt að gera út af við þau ef menn ná góðu höggi, en þau eru afar grimm og reið og vægðarlaus í návígi. Þetta vill Friðrik Ingi notfæra sér og vill að lið sitt snúi algerlega við blaðinu frá í síðasta leik og byrji með látum og taki leikinn í sínar hendur. En Keflvíkingar eru klárir í slaginn og mæta einbeittir. Ætla ekki að sleppa því kverkataki sem þeir náðu á Grindjánum í síðasta leik.

Grindavík byggir sem fyrr mest á einspili þeirra Lewis og Jones. Páll Axel reynir að finna frí skot og Rogers hirðir molana undir körfunum. Helgi Jónas átti frábæra innkomu í 2. leik, en gengur ekki heill til skógar og ekkert er vitað um hans þátttöku í kvöld. Rogers er einnig eitthvað meiddur á mjöðm en hyggst engu að síður leika.

Okkar menn eru allir ferskir og fit. Guðjón og Falur hafa undirbúið þá fyrir lokaorrystuna í þessu stríði og allir leikmenn vita til hvers er af þeim ætlað. Nú er bara að bretta upp ermar og láta verki tala, því það er bara eitt tækifæri til þess og það er í dag!

ÁFRAM KEFLAVÍK!