Fréttir

Körfubolti | 4. desember 2005

Sigur gegn Fjölni í Grafarvoginum, 97-93

Keflvíkingar voru lengst af á hælunum í Grafarvoginum í dag, sérstaklega í vörninni, en náðu þó á réttu augnabliki að snúa leiknum sér í hag og landa mikilvægum sigri í toppbaráttunni, 97-93. Spennan var töluverð í lokin og tveir þristar frá Magga og Arnari gerðu útslagið, ásamt glæsilega vörðu skoti frá Jonna á síðustu sekúndu leiksins. Arnar Freyr keyrði að körfunni þegar 11 sekúndur voru eftir. Brotið var á honum og í stöðunni 94-93 fyrir Kef setti hann seinna vítið niður, 95-93. Fjölnismenn áttu því tækifæri á að jafna eða komast yfir. Lárus Jónsson sem sett hafði tvo þrista niður skömmu áður, ákvað að reyna upp á eigin spýtur og drævaði inn í vörnina og tók stökkskot. En Jonni sá við honum og varði skotið glæsilega. Maggi náði svo boltanum, brotið var á honum og hann setti bæði vítin niður og lagaði stöðuna aðeins.

Fjölnismenn voru fetinu framar mest allan leikinn, þetta 4-8 stig að jafnaði. Þeir leiddu 46-41 í hálfleik, Keflavík jafnaði en síðan náði Fjölnir 10 stiga forskoti, 67-57. En Keflavík hékk inní leiknum eins og hundar á roði, þrátt fyrir skelfilegan varnarleik, og svo voru þeir klókir og hittnir í lokinn. AJ var drjúgur að vanda og Jonni frábær í vörninni. Hann veiddi m.a. nokkra ruðninga, en af einhverjum óskiljanlegum ástæðum slepptu dómarar leiksins í það minnsta þrisvar sinnum í lokin að dæma ruðning þegar Jonni var keyrður niður. En hvað um það, Gunni Einars átti ágætan sprett í fyrri hálfleik og var öruggur á línunni, Maggi var sprækur á drævunum, en ekki í skotstuði. Arnar Freyr gerði þó gæfumuninn í kvöld, hann átti tvívegis góða innkomu og var síðan afar sterkur í lokin.

Vörnin var þó ferlega léleg næstum allan leikinn. Enginn áhugi virtist vera á því að trufla Fjölnismenn i þriggja stiga skotum og fengu þeir að skjóta að vild, og nýttu sér það ansi vel. Eins voru fráköstin slök og fengu heimamenn ansi oft að taka tvö eða þrjú skot í sömu sókninni.

Hér má lesa umfjöllun sport.is um leikinn.

Góður sigur í Grafarvogi, þó Keflavíkurliðið hafi leikið langt undir getu. Mikilvægt að menn fari að stilla saman strengi, því að á fimmtudaginn er alvöru stórleikur í Sláturhúsinu!

ÁFRAM KEFLAVÍK