Sigur gegn Tindastól í fyrsta leik Lengjubikars
Keflvíkingar fóru með 97:74 sigur í TM-höllinni í kvöld þegar þeir fengu Tindastól í heimsókn í Lengjubikarnum. Leikurinn var ágætis skemmtun og bæði að hrista af sér sumarið og koma sér í gírinn fyrir átökin í vetur. Keflvíkingar leiddu með 7 stigum í hálfleik en í þeim þriðja þá tóku þeir gott áhlaup og komust í 20 stiga forystu sem Stólarnir náðu aldrei að brúa.
Stigahæstir hjá Keflvík voru Darrell Lewis og Magnús Þór Gunnarsson báðir með 23 stig.
Nánari umfjöllun og myndir á www.karfan.is