Fréttir

Karfa: Yngri flokkar | 11. janúar 2012

Sigur hjá 9. flokki drengja í bikar

9. flokkur drengja lék í kvöld í 8 liða úrslitum bikarkeppni KKÍ gegn liði Breiðabliks. Leikurinn fór fram hér heima og stjórnaði Guðmundur Skúlason liðinu í fjarveru þjálfara drengjanna. Leikurinn fór frekar hægt af stað og gekk báðum liðum illa að skora. Í lok fyrstu lotu tóku okkar drengir smá rispu og leiddu 17-6. Annar leikhlutinn var nokkuð jafn og stóðu leikar í hálfleik 29-17. Í seinn hálfleik náðu okkar drengir betri stjórn á leiknum og lauk leik með sigri okkar drengja 64-34 þar sem allir leikmenn okkar komu við sögu.

Liðið í kvöld var skipað eftirfarandi piltum: (skoruð stig)
Sindri Ólafsson (13), Guðmundur Ólafsson (10), Sigurþór I. Sigurþórsson (26), Árni V. Karlsson, Tryggvi Ólafsson (9), Marvin H. Guðmundsson (4), Sigurður Galdur Loftsson, Oliver Bjarnason, Arnór I. Ingvason, Eiður Unnarsson (1), Kristinn R. Sveinsson og Arnþór I. Ingvason (1)

Keflavík er því fyrsta liðið sem tryggir sig í fjögurra liða úrslitin en aðrir leikir í bikarkeppni 9. flokks fara fram á föstudaginn.

Áfram Keflavík !

 
Mynd úr bikarkeppninni í fyrra.