Sigur hjá 9. flokki stúlkna
9. flokkur stúlkna er kominn í 4 liða úrslit í bikarnum eftir 59 - 29 sigur á Haukum í Toyota Höllinni miðvikudagskvöldið 11. janúar.
Sigurinn var aldrei í hættu. Haukar komust einu sinni yfir í leiknum en það var á upphafsmínútum leiksins (4 – 2) en eftir það skildu leiðir. Alltaf smá taugaspenna í stúlkunum í upphafi leiks, en það er eitthvað sem þær þurfa að vinna í og laga. Keflavík lagði grunnin að sigrinum með pressu og góðri vörn. Allt liðið fékk að spila og var sama hver kom inn á, allar einbeittar og klárar í verkefnið.
Liðin sem eru komin áfram í 4 liða úrslit eru:
Keflavík, Njarðvík, KR og annað hvort Grindavík eða Hrunamenn en þeir leika í kvöld fimmtudag um sæti í 4 liða úrslitum.
Áfram Keflavík....