Fréttir

Körfubolti | 18. september 2004

Sigur hjá kvennaliðinu í fyrsta leik á mótinu í Köben

Í fyrsta leik viná ttumótsins í Hörsholm vann Keflavík sigur á Lobas frá Svíþjóð. Leikurinn var góður hjá Keflavík sem hefði 10 stiga forystu rétt fyrir leikslok. En forystan hvarf hratt og fór niður í 2 stig í lokin, en lokatölur voru 53-51 fyrir Keflavík. Stigahæstar í þessum leik voru þær Bryndís, sem átti toppleik, með 15 stig og Rannveig með 14.

Birna og Svava hafa ekki leikið með enn og munu líklega ekki gera það fyrr en heim kemur á ný.Næsti leikur verður síðar í dag gegn Hörsholm, en þær verða sterkari en í gær, þar sem tveir sterkir leikmenn voru fjarverandi í gær.