Sigur hjá "strákunum okkar" og bikarævintýrið lifir
Við byrjuðum ekki eins og skyldi og þá sérstaklega var sóknin mjög treg í fyrstu tveimur lotunum. Auðveldu skotin rötuðu ekki rétta leið og sem dæmi skorðum við aðeins 15 stig fyrstu 10 mínútur leiksins.
Önnur lota var ekki mikið betri, gekk erfiðlega að skora. Því var farið til hálfleiks og rætt hvað væri til ráða. Og þegar 10 mín voru liðnar af seinni hálfleik þá höfðum við skorað 28 stig en þeir 6 stig, þar með var leiknum gott sem lokið. Nú var ekki aftur snúið við og var hann auðveldur eftir það. Stigaskorið var frekar jafnt í leiknum og allir eiga hrós skilið fyrir mikla barráttu, sérstaklega í seinni hálfleik. Lokatölu ÍR 55- Keflavík 90
Magni 14 stig 2 3-stiga. Sigfús 12 stig 2/2 víti. Elvar 10 stig. Sigurður 10 stig 2 3-stiga. Róbert 9 stig 3/1víti 2 3-stiga. Garðar 8 stig 2 3-stiga. Guðmundur 8 stig 2/2 víti. Axel 6 stig 6/4 víti. Bjarni 5 stig 2/2 víti 1 3- stig. Jóhann 4 stig 2/1 víti 1 3-stiga. Almar 4 stig.
Jón I Guðbrandsson