Fréttir

Körfubolti | 9. október 2005

Sigur og tap í kvöld

Í kvöld var á dagskránni Meistarar meistaranna, en sú keppni leiðir saman Íslands- og Bikarmeistara síðustu leiktíðar. Íslandsmeistararnir leika á heimavelli og því komu Haukastúlkur og Njarðvíkurdrengir í heimsókn í Sláturhúsið í kvöld, en það stóð nú ekki fyllilega undir nafni í þetta skiptið....

Létt hjá stúlkunum
Haukastúlkur mættu með hálf vængbrotið lið, þar sem Helena Sverrisdóttir er meidd á ökkla og nýfenginn útlendingur þeirra Jelena J. hafið ekki fengið leikheimild. Keflavíkurstúlkur voru hins vegar í fantaformi, með fullskipað lið, fyrir utan Marínu Rós, sem er að jafna sig eftir hnémeiðsli.

Í stuttu máli sagt var þessi leikur afar ójafn og eign okkar stúlkna frá fyrstu mínútu. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 19-7 og hélt áfram að aukast allan leikinn, mishratt að vísu. Í lokin var munurinn tæp 30 stig, 76-47 og Keflavík varði titilinn í kvennaflokki þetta árið.

Þótt ójafnir leikir séu sjaldan mikið fyrir augað, þá gladdi það keflvíska áhorfendur að sjá kraftinn í stúlkunum, en allar 12 fengu að spreyta sig og setja mark sitt á leikinn. Einnig var gaman að sjá til Resheu sem mætt er aftur til Kef. Hún er sérlega skemmtileg á velli og sendingar hennar oft stórkostlegar. Hún gaf 7 stoðsendingar, skoraði 14 stig og stal 13 boltum, sem er með því meira sem maður hefur orðið vitni að. Gaman var einnig að sjá til nýju liðsmannanna, þeirra Ingibjargar Elvu og Margrétar Köru, en þær eru sprækar og eiga eftir að gera gott lið enn betra. Annars var liðið að leika ágætlega þótt oft hafi kæruleysis gætt í sóknarleiknum, enda kannski eðlilegt í ljósi yfirburðanna.

Haukar verða mun sterkari þegar lykilmenn koma til leiks, en mikið mæddi á Keshu Tardy sem gerði 14 stig og hirti 20 fráköst.

Til hamingju með titilinn stúlkur, vonandi sá fyrsti af mörgum í vetur!

Þungt hjá strákunum
Leikur Keflavíkur og Njarðvíkur var hraður og jafn í fyrri hálfleik. Góð hittni utan af velli og ágæt tilþrif sáust. Staðan í hálfleik var 42-46. Í seinni hálfleik datt botninn úr leiknum hjá okkar mönnum þegar villuvandræði (Jason og Halldór) og meiðsli (Jonni snéri sig á ökkla) tóku broddinn úr leik liðsins undir körfunum. Zlatko er ekki kominn með leikheimild og var því ekki með í kvöld, og þegar hinir stóru strákarnir tíndust af vellinum varð eftirleikurinn auðveldur fyrir Njarðvík sem kláraði leikinn í fjórða leikhluta, hann hófst í stóðunni 65-69 en leikurinn endaði 79-94.

Lítið gekk að ráða við Friðrik og Egil, hvorki í vörn né sókn (þeir skoruðu saman 30 stig og vörðu 10 skot), og þegar þriggja stiga hittnin dalaði í seinni hálfleik var fátt um fína drætti, enda lítið orðið um “inside” sóknarleik. Frákastabaráttan tapaðist enda illilega, Njarðvík tók 45 en Keflavík 32 og það sem meira er, Keflavík tók 20 varnarfráköst á móti 19 sóknarfráköstum gestanna sem þýðir einfaldlega að Njarðvíkingar tóku hérumbil annað hvert frákast sem hrökk af okkar körfu, en það er skelfilegt og veit ekki á góð úrslit. Jason náði aðeins rúmum 20 mínútum og var þokkalegur á þeim tíma, en nýtti færi sín ekki nógu vel, hann setti 14 og tók 11 fráköst. Maggi var sprækur á köflum (20 stig, 7 stoðs.) sem og Arnar Freyr (16 stig, 6 stoðs.), en aðrir voru ekki að blómstra, nema helst Halldór sem barðist vel (gerði 5 stig, tók 6 frák. og varði 2 skot). Heilt yfir var leikur okkar manna slakur.

Þrír dómararar dæmdu leikinn og var í sjálfu sér ánægjulegt að sjá Simma og Kidda dæma leik Keflavíkur og Njarðvíkur, en þessir bestu dómarar okkar fá jú oft ekki að taka þátt í aðalverkefnum ársins þar sem það eru ansi oft þessi félög sem takast þar á. Þriðji dómarinn var Björgvin Rúnarsson. Dómgæslan var í sjálfu sér ágæt, nema hvað heilt yfir var dæmt of mikið af villum, því þegar villurnar eru 52 og vítaskotin 57 þá verður leikurinn ansi slitróttur. Það væri áhugavert að vita hvort þrír dómarar kalli ósjálfrátt á fleiri villur, spyr sá sem ekki veit?

Keflavíkurliðið á eftir að eflast á næstu vikum og mánuðum, mannskapurinn er góður, en það sást berlega í kvöld að við þurfum á stóru strákunum okkar að halda. Við óskum Njarðvíkingum til hamingju með sigurinn og titilinn, en þeir unnu okkur einmitt í þessari keppni í fyrra líka, þá 79-105. Vonandi að þetta sé góður fyrirboði fyrir Íslandsmótið ... :)