Sigurður Gunnar Þorsteinsson endurnýjar ekki við Keflavík
Nú er orðið ljóst að Sigurður Gunnar Þorsteinsson mun ekki endurnýja samning sinn við Körfuknattleiksdeild Keflavíkur. Þessi niðurstaða var ljós í gær, eftir að samningaviðræður sem staðið hafa yfir síðustu vikur, sigldu í strand. Körfuknattleiksdeild Keflavíkur tefldi fram betri samning við Sigurð og spennti bogann eftir ítrustu getu en án árangurs. Sigurður mun því kveðja herbúðir Keflvíkinga eftir að hafa spilað með klúbbnum síðastliðin 5 tímabil. Hann kom upprunalega til Keflavíkur frá KFÍ árið 2006, þá 18 ára gamall. Hann varð Íslandsmeistari með Keflvíkingum tímabilið 2007-2008. Á yfirstöðnu tímabili var Sigurður með 15.7 stig og 7.9 fráköst að meðaltali í leik.
Stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur óskar Sigurði velfarnaðar á komandi árum.
Um þessar mundir er stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur í fullri vinnu í samningaviðræðum við þá leikmenn sem eru með lausa samninga, ásamt nýjum þjálfara hjá kvennaliði Keflavíkur. Fréttir um þau mál munu berast um leið og þau mál klárast.