Sigurður Ingimundarson þjálfar karlalið Keflavíkur á næstu leiktíð
Sigurður Ingimundarson þjálfar karlalið Keflavíkur á næstu leiktíð
Tilkynning frá stjórn körfuknattleiksdeildar Keflavíkur:
Í gær var gengið frá samningi við Sigurð Ingimundarson um þjálfun meistaraflokks karla hjá körfuknattleiksdeild Keflavíkur á næstu leiktíð. Sigurður á farsælan þjálfaraferil að baki hjá Keflavík og er öllum hnútum kunnugur hjá félaginu. Stjórnin býður Sigurð velkominn aftur til leiks. Sigurður er einnig landsliðsþjálfari, en lítil sem engin skörun er á verkefnum landsliða og félagsliða sökum mótaskipulags FIBA.
Stjórnin vill þakka fráfarandi þjálfurum, Fali Harðarsyni og Guðjóni Skúlasyni, fyrir frábæra leiktíð. Þeirra störf voru til fyrirmyndar og árangurinn stórglæsilegur. Flestir höfðu líklega gert ráð fyrir að þeir myndu halda áfram sem þjálfarar liðsins, en þeir tvímenningar kusu að falast ekki eftir áframhaldandi þjálfun saman og því kom það í hlut stjórnar að velja milli þriggja afar hæfra þjálfara og mikilla Keflvíkinga sem allir myndu sóma sér vel sem leiðtogar Keflavíkurliðsins.
Ákvörðun stjórnar var að leita til Sigurðar en vonandi fær félagið að njóta starfskrafta þeirra Fals og Guðjóns áfram, þótt síðar verði, enda miklir sigurvegarar og heiðursmenn, báðir tveir.
Nú er þessi erfiða ákvörðun að baki og mikilvægt að beita öllum kröftum að undirbúningi næstu leiktíðar, en stefnan er tekin á að verja stóru titlana auk þess sem stefnt verður að áframhaldandi þátttöku í Evrópukeppni.
Gengið verður frá ráðningu þjálfara fyrir kvennaliðið á allra næstu dögum, en stefnan með kvennaliðið er mjög metnaðarfull og einnig þar er stefnt á keppni á evrópskum vettvangi.