Sigurður Ingimundarson þjálfar landsliðið áfram
Sigurður Ingimundarson þjálfari Keflavíkurliðsins verður áfram landsliðsþjálfari karlaliðsins en frá þessu var gengið í hádeginu í dag. Þetta kemur okkur Keflavíkingum ekki á óvart enda Siggi langbesti þjálfari landsins í dag. Þá var Ágúst Sigurður Björgvinsson ráðinn þjálfari A-landsliðs kvenna og tekur hann við því starfi af Guðjóni Skúlasyni.
Það er mjög ánægjulegt fyrir íslenskan körfubolta að Sigurður sé tilbúinn til þess að vera áfram með okkur. Hann hefur sýnt það með árangri sínum að hann er mjög góður þjálfari og hefur mikla þekkingu á evrópskum körfuknattleik sem er mjög gott fyrir okkur núna þegar við stefnum hærra með landsliðin okkar,” sagði Hannes en voru einhverjir aðrir þjálfarar sem komu til greina? ,,Það var aldrei rætt neitt annað en að ganga fyrst til viðræðna við Sigurð þar sem það er einlægur vilji stjórnar og landsliðsnefndar karla að hafa Sigurð áfram við stjórnartaumana,” sagði Hannes.
Siggi tekur lagið á lokahófi KKDK.